Sjávarútvegsráðherra og formaður atvinnuveganefndar Alþingis hafa ákveðið að nauðsynlegt sé að fram fari úttekt á rekstrarstöðu fyrirtækja í sjávarútvegi. Þetta kemur farm á vef ráðuneytisins.

Í úttektinni verður einkum horft til þess hvaða áhrif styrking krónunnar hefur haft á stöðu sjávarútvegsfyrirtækja. Einnig verður litið til afleiðinga sjómannaverkfallsins á einstakar greinar. Að auki verða áhrif á virðiskeðju sjávarútvegsins tekin til skoðunar.

Úttektin mun sérstaklega horfa til lítilla og meðalstórra fyrirtækja sem til viðbótar við framangreindan vanda standa nú frammi fyrir því að ekki verður framlengdur sá skuldatengdi afsláttur á veiðigjöldum sem framangreind fyrirtæki hafa notið síðustu fimm ár. Þegar niðurstaða úttektarinnar mun liggja fyrir verður tekin ákvörðun um hvort staðan kalli á sérstakar ráðstafanir og þá hverjar.

Úttektin verður framkvæmd af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu og er stefnt að því að henni verði lokið um miðjan september.