Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sett á fót verkefnisstjórn sem hefur það hlutverk að móta matvælastefnu fyrir Ísland. Matvælastefnan skal liggja fyrir í árslok 2019. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Verkefnisstjórnina skipa:
- Vala Pálsdóttir, formaður, skipuð af ráðherra
- Ingi Björn Sigurðsson, skipaður af ráðherra
- Ragnheiður Héðinsdóttir tilnefnd af Samtökum iðnaðarins
- Anna Guðmundsdóttir, tilnefnd af Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi
- Sigurður Eyþórsson, tilnefndur af Bændasamtökum Íslands
Verkefnastjórar koma frá Matís og auk þess mun Matarauður Íslands eiga áheyrnarfulltrúa.
Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á að Ísland skuli vera leiðandi í framleiðslu á heilnæmum landbúnaðarafurðum og tryggð verði áframhaldandi samkeppnishæfni sjávarútvegs á alþjóðlegum mörkuðum. Þá beri að nýta tækifæri sem byggjast á áhuga á matarmenningu með sjálfbærni og gæði að leiðarljósi, þróa á lífhagkerfið enn frekar og stuðla að nýsköpun og vöruþróun til að auka virði afurða og byggðafestu.
Við mótun matvælastefnu mun verkstjórnin meðal annars horfa til samkeppnishæfni á alþjóðlegum markaði, mikilvægi þess að draga úr matarsóun og bættu aðgengi að hollum mat ásamt fleiri þáttum.