Helstu áherslumál framboðs Viðreisnar til komandi sveitarstjórnarkosningar í Mosfellsbæ eru gegnsæi í allri stjórnsýslu bæjarins og að velferð allra íbúa sé í fyrsta sæti segir í fréttatilkynningu frá framboðinu sem hefur nú verið kynnt.

Viðreisn ætlar að styrkja skólastarf með því að styðja betur við kennara og tryggja öllum nemendum nútíma tækni og aðbúnað. Gera íþróttaaðstöðu í Mosfellsbæ framúrskarandi og skipuleggja íþróttaaðstöðu til lengri tíma.Viðreisn ætlar að gera Mosfellsbæ að barnvænu samfélagi í anda barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og tryggja að börn líði ekki fyrir fátækt.

Viðreisn vill hlúa að eldri borgurum og vinna að því að öryrkjum og fötluðum sé tryggð sú þjónusta sem þeir þarfnast. Viðreisn ætlar að standa vörð um náttúruna og taka skipulagsmál föstum tökum og sýna ábyrga fjármálastjórn.

Hér fer á eftir listi Viðreisnar í Mosfellsbæ:

  • 1 Valdimar Birgisson 56 ára Auglýsingastjóri
  • 2 Lovísa Jónsdóttir 43 ára Lögfræðingur
  • 3 Ölvir Karlsson 29 ára Lögfræðingur
  • 4 Hildur Björg Bæringsdóttir 42 ára Verkefnastjóri
  • 5 Magnús Sverrir Ingibergsson 47 ára Húsasmíðameistari
  • 6 Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir 21 ára Nemi og lögregluþjónn
  • 7 Karl Alex Árnason 24 ára Kjötiðnaðarmaður
  • 8 Elín Anna Gísladóttir 30 ára Verkfræðingur
  • 9 Ari Páll Karlsson 21 ára Sölu- og þjónustufulltrúi
  • 10 Olga Kristrún Ingólfsdóttir 38 ára Verkefnastjóri
  • 11 Pétur Valdimarsson 52 ára Viðskiptafræðingur
  • 12 Erla Björk Gísladóttir 35 ára Mannauðsráðgjafi
  • 13 Vladimir Rjaby 42 ára Bifvélavirki
  • 14 Guðrún Þórarinsdóttir 52 ára Framkvæmdastjóri
  • 15 Jóhann Björnsson 35 ára Framhaldsskólakennari
  • 16 Sara Sigurvinsdóttir 29 ára Sérfr. á mannauðssviði
  • 17 Sigurður Gunnarsson 48 ára Löggiltur fasteignasali
  • 18 Hrafnhildur Jónsdóttir 59 ára Ritari