Íbúðalánasjóður hefur að beiðni Þorsteins Víglundssonar, félags- og jafnréttismálaráðherra, unnið greiningu á vöntun á húsnæðismarkaði á Íslandi. Fjölgun eigna hefur ekki haldist í hendur við mannfjöldaþróun á landinu undanfarin ár. Þetta kemur fram í frétt á vef velferðarráðuneytisins.

Samkvæmt greiningu sjóðsins er uppsafnaður mismunur á framboði og eftirspurn íbúðarhúsnæðis um 4.600 íbúðir, að því gefnu að um 1.600 íbúðir séu á hverjum tíma í skammtímaleigu til ferðamanna.

Heildarþörf á uppbyggingu á íbúðarhúsnæði á næstu þremur árum eru 9.000 íbúðir. Hægt er að lesa greiningu sjóðsins hér en hún er hluti af ítarlegri greiningu á stöðu húsnæðismála á landinu sem Íbúðalánasjóður annast fyrir aðgerðarhóp um húsnæðisvandann. Í aðgerðarhópnum sitja fjórir ráðherrar ríkisstjórnarinnar. Hópurinn mun skila tillögum um úrbætur í húsnæðismálum í maí.