Stjórnvöld eru hvött til þess að grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir aðsteðjandi kennaraskort á Íslandi. Þetta kemur fram í stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar, hér má lesa frétt stofnunarinnar um málið.

„Frá árinu 2009, þegar kennaranám var lengt úr þremur árum í fimm, hefur mikil fækkun verið á skráðum nemendum við kennaradeildir skólanna. Nú er svo komið að háskólarnir ná ekki að brautskrá nægilega marga kennara til að viðhalda eðlilegri nýliðun í stéttinni. Kennaradeildir Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri eru einnig hvattar til leita leiða til að laða nýnema í kennaranám og til þess að auka skilvirkni í kennaranámi,“ segir meðal annars í umfjöllun RSK.

Talið er að nálega 60% menntaðra leikskólakennara og um helmingur grunnskólakennara séu við kennslustörf í leik- og grunnskólum landsins. Þetta bendir meðal annars til þess að kennaraskortur verður ekki einungis leystur með fjölgun kennaranema. Einnig sé mikilvægt að laða menntaða kennara til starfa og hvetja þá til að halda störfum innan stéttarinnar, að mati RSK.

Ríkisendurskoðun hefur einnig hvatt mennta- og menningarmálaráðuneytið til að þróa opinbera mælikvarða til að meta kostnað og skilvirkni háskólakennslu, en það hefur ekki verið gert. „Ef litið er til endurkomu- og brautskráningarhlutfalls kennaranema við skólana tvo á undanförnum árum virðist hlutfallið hærra hjá Háskólanum á Akureyri og telst hann því skilvirkari í starfi sínu en Háskóli Íslands. Kennaranám við Háskóla Íslands virðist á hinn bóginn heldur ódýrara en við Háskólann á Akureyri. Á árunum 2013–15 varði Háskóli Íslands að meðaltali um 74 færri vinnustundum og greiddi rúmlega 235 þús.kr. minna í laun við að mennta hvern brautskráðan kennaranema en Háskólinn á Akureyri,“ segir í greiningunni.

Þar kemur einnig fram að árið 2015 kostaði hver brautskráður nemandi, sem lauk fimm ára kennsluréttindanámi á tilskildum námshraða, ríkissjóð að lágmarki um 4,3 milljónir króna. Raunkostnaður eykst þó vegna nemenda sem ljúka námi á lengri tíma og vegna þeirra sem hætta námi. Því telur Ríkisendurskoðun mikilvægt að auka skilvirkni kennaradeildanna með því að draga úr brotthvarfi nemenda og auka námshraða þeirra.