Þýski leikfangadreifingaaðilinn Vedes hefur formlega tilkynnt um innköllun á Amia dúkkum frá framleiðandanum The Toy Company sem hafa verið seldar hér á landi undanfarnar vikur.

Ástæðan er galli í framleiðslu sem getur mögulega leitt til þess að smáhlutir af dúkkunni losni af. Varan uppfyllir því ekki þær gæðakröfur sem gerðar eru til vörunnar og óskar Vedes því eftir að Amia dúkkurnar verði innkallaðar.

Hagkaup hafa þegar tekið dúkkurnar úr sölu í sínum verslunum segir í fréttatilkynningu frá versluninni. Viðskiptavinir sem keypt hafa Amia dúkkurnar geta skilað þeim í næstu Hagkaupsverslun og fengið vöruna endurgreidda. Umræddar vörur hafa framleiðslunúmerið 50006042.