Vefmiðlar voru í fyrra með stærsta hlutann í birtingum hjá Pipar/Media, birtingaarmi Pipar/TBWA, einnar stærstu auglýsingastofu landsins. Er það í fyrsta sinn sem vefmiðlar taka fram úr dagblöðum í auglýsingabirtingum en frá þessu var greint í Markaðnum .

Um 33 prósentum af birtingafé Pipar/MEDIA var varið í auglýsingar í vefmiðlum á síðasta ári. Þar á eftir komu dagblöð með 24 prósenta hlutdeild og sjónvarp með 23 prósent, en hlutdeild þeirra miðla lækkaði nokkuð á milli ára. Fór hlutdeild dagblaðsins úr 28 í 24 prósent og sjónvarpsins úr 25 í 23 prósent. Þá stóð útvarpsmiðillinn í stað með um 17 prósent birtingafjár. Til samanburðar var hlutfall vefmiðla 27 prósent árið 2016.