Veiði á handfæri hefur fjórfaldast frá árinu 2008. Heildarveiði á færin á nýliðnu ári fór í annað skiptið á tímabilinu yfir 25 þúsund tonn. Mest var veitt af þorski 14.677 tonn og makríl 8.527 tonn. Þrátt fyrir þessa aukningu á handfæraafla er hann aðeins 2,3% af heildarafla íslenskra skipa.

Þessar upplýsingar koma fram á vef Landssambands smábátaeigenda. „Árið 2009 var upphafsár strandveiða hér við land. Strandveiðar hleyptu nýju blóði inn í sjávarútveginn, gæddu hafnirnar lífi og efldu hinar dreifðu byggðir landsins,“ segir vef LS.

Heildarafli íslenskra skipa á öllum miðum nam alls 1.070 þúsund tonnum á síðasta ári.Í fréttinni á vef LS segir að fara þurfi aftur til ársins 2010 til að finna minni afla en þá veiddust 1.068 þúsund tonn. Heildarveiði á árinu 2016 sé 13,2% minni en meðaltal sl. tíu ára.

Árið 1997 er aflahæsta árið í sögu íslenskra skipa en þá veiddu þau um 2,2 milljónir tonna.