LS hefur tekið saman upphæð veiðigjalda fyrir helstu fisktegundirnar á yfirstandandi fiskveiðiári og því sem hefst 1. september nk.  Í nær öllum tilfellum lækka gjöldin milli ára sem er í samræmi við lægra fiskverð. Eina undantekningin er grásleppa þar sem veiðigjaldið hækkar um 26%. Þá lækkar veiðigjald á grálúðu um 1%.

Samkvæmt reglugerð um fjárhæð, álagningu og innheimtu veiðigjalds fiskveiðiárið 2016/2017 er veittur 20% afsláttur af fyrstu 4,560.00 kr álagðs gjalds og 15% af næstu 4.560.000-.

Sjá nánar á vef LS.