Veiðistofn úthafsrækju hefur hækkað, ef marka má nýjustu mælingar sem fram fóru á rannsóknaskipinu Bjarna Sæmundssyni 12.-26. júlí sl., en í leiðangrinum voru teknar 86 stöðvar eftir fyrirfram ákveðnu stöðvaplani.

Vísitala úthafsrækjustofnsins hefur farið nær stöðugt lækkandi frá árinu 2009 og árið 2015 var hún sú lægsta sem mælst hefur síðan rannsóknir á úthafsrækju hófust árið 1988.

Í frétt frá Hafrannsóknastofnun segir að vísitala stofnsins árið 2016 hafi verið hærri en síðastliðin ár og mældist svipuð og árin 2012 og 2013. Þéttleiki rækju var tiltölulega jafn en lítill yfir nær allt rannsóknasvæðið með þeirri undantekningu að þéttleikinn var minni austast á svæðinu. Líkt og verið hefur í meira en áratug mældist lítið af ungrækju og sýna niðurstöðurnar að nýliðun er áfram mjög slök, segir Hafró.