Um 11.300 kaupsamningum var þinglýst árið 2015 á landinu öllu og námu heildarviðskipti með fasteignir tæplega 370 milljörðum króna. Þetta kemur fram í samantekt Þjóðskrár Íslands um fasteignamarkaðinn á Íslandi árið 2015. Meðalupphæð á hvern samning var um 33 milljónir króna. Til samanburðar var veltan árið 2014 rúmlega 300 milljarðar, kaupsamningar 9.402 og meðalupphæð hvers samnings um 32 milljónir króna. Heildarvelta fasteignaviðskipta hefur því aukist um rúmlega 24% frá árinu 2014 og kaupsamningum fjölgað um rúmlega 20%.

Sé litið til höfuðborgarsvæðisins stefnir heildarupphæð þinglýstra kaupsamninga í um 285 milljarða króna, kaupsamningar um 7.400 og meðalupphæð kaupsamings verður um 38,5 milljónir króna. Það þýðir að heildarvelta kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu er um 77% af veltu á landinu öllu. Heildarupphæð þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu á árinu 2014 var  232 milljarðar króna og fjöldi kaupsamninga var 6.274. Meðalupphæð samninga árið 2014 var um 36,9 milljónir króna. Heildarvelta á höfuðborgarsvæðinu hefur því aukist um tæplega 23% og fjöldi kaupsamninga hefur aukist um tæplega 18%.