Venus NS er nú á leið til heimahafnar á Vopnafirði með fyrsta kolmunnafarm ársins. Kolmunninn fékkst vestur af Írlandi en þaðan er um 800 sjómílna sigling til Vopnafjarðar. Heimsiglingin tekur því tæpa þrjá sólarhringa og skipið væntanlegt til Vopnafjarðar nú um eða eftir hádegið.

Þetta kemur fram á heimasíðu HB Granda.

„Það er veiði eins og er. Aðalveiðin er yfir nóttina en á daginn dreifir kolmunninn sér og veiðin er lítil. Það er misjafnt hve lengi er dregið hverju sinni en það ræðst af aflabrögðum og veðri. Tíðarfarið hefur verið rysjótt og sl. sólarhring var veðrið slæmt. Það er gott veður núna en engin veit hvað það endist lengi,“ sagði Guðlaugur Jónsson, skipstjóri, er heimasíðan ræddi við hann fyrir helgi en hann áætlar að aflinn sé 2.600 til 2.700 tonn eftir rúma fjóra sólarhringa á veiðum.

Að sögn Guðlaugs er mikill fjöldi skipa á kolmunnaveiðunum.

„Við vorum heppnir að því leyti að við þurftum ekki að bíða eftir því að komast að. Þarna er þröng á þingi en við gátum byrjað veiðar um leið og við komum á svæðið sl. mánudag,“ segir Guðlaugur Jónsson.