Verð á aflaheimildum  hefur verið nokkuð stöðugt undanfarna tólf mánuði. Á vef Fiskistofu kemur fram að verðið á aflamarki í þorski hefur verið í kringum 200 kr/kg en litlu lægra í krókaaflamarki. Í nóvember tók verð að hækka lítillega og er í dag 225 kr en hefur verið stöðugt um 170 - 180 krónur í krókaflamarkskerfinu frá miðju síðasta ári.

Fiskistofa segir að af verðþróuninni að dæma megi ljóst vera að verðfallið sem varð á haustmánuðunum 2012, sem  megi rekja til aukins framboðs á þorski á erlendum mörkuðum, hafi ekki gengið til baka nema að litlu leyti. Verðið í aflamarkskerfinu fór hæst í upphafi árs 2012 upp í 330 krónur.