Búist er við því að umsókn Costco um stækkun á bensínstöð fyrirtækisins verði staðfest hjá bæjarráði eins fljótt og auðið er, eins og sakir standa er erindið hjá byggingarfulltrúa að því er kemur fram í frétt Mbl.is.

Eins og áður hefur verið greint frá vill Costco fjölga bensíndælum sínum úr tólf í sextán. Samkvæmt deiliskipulagi Kauptúns er heimild fyrir fjórum dælueyjum eða sextán dæluslöngum á lóðinni. Núna eru þrjár dælueyjur á bensínstöðinni með tólf slöngum.