Íslenska sýndarveruleikafyrirtækið, Sólfar Studios, framleiðandi ásamt RVX að sýndarveruleikaupplifuninni Everest VR tilkynnti í dag að hin Konunglega Landfræðistofnun Bretlands hefur þegið að gjöf Everest VR sem muni þannig verða varanlegur hluti af Everest safni stofnunarinnar.

Everest VR var gefið út í fyrra og hefur vakið talsverða athygli með það hvernig tekist hefur að fanga þá upplifun að klífa hæsta fjall heims. „Sólfar hefur unnið áfram að þróun þessarar upplifunar og þá sér í lagi hvað varðar fræðigildi hennar. Það er meðal annars með því að bæta við 18 sögulegum leiðum upp fjallið sem notendur geta fylgt eftir á eigin hraða og upplifað frá mismunandi stærðargráðum, allt frá því að vera á mennskum skala yfir í það að gnæfa 1.5 km yfir landslaginu. Að sjálfsögðu er ein leiðin sú sem Edmund Hillary og Tenzing Norgay fóru er þeim tókst fyrstum manna að ná alla leið upp á tind fjallsins,“ segir í tilkynningu.

„Þegar við kynntum okkur starfsemi hinnar konunglegu stofnunar og það gríðarlega safn af sögulegum ljósmyndum sem þeir höfðu í Everest safni sínu vildum við strax finna leiðir til að koma þeim á framfæri í VR upplifun okkar, og þá sér í lagi myndirnar af 1953 leiðangrinum þannig að menn gætu áttað sig betur á þessum sögulega atburði í sókn manna til að kanna hið óþekkta” sagði Kjartan Pierre Emilsson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Sólfars.

„Hinn einstaki hæfileiki sýndarveruleika til að flytja fólk á annars ómögulega staði er eitthvað sem við trúum sterklega á og er það okkur mikill heiður að þessi virðulega stofnun sjái einnig þarna mikla möguleika til að styðja við sinn tilgang,” bætir hann við.

Notuð í þjálfun og undirbúning ferða á Everest

Gjöfin er hugsuð til þess að styðja við góðgerða- og fræðsluhlutverk stofnunarinnar í að auka sýnileika og þekkingu á hinu sögulega Everest safni. Upplifunin verður meðal annars notuð í sýningum fyrir almenning, skóla og fræðimenn. Jafnframt verður hún notuð við þjálfun og undirbúning ferða.

„Við erum virkilega ánægð með þessa höfðinglegu gjöf og það að setja sögulegt myndefni úr safni okkar í samhengi við landslagið sjálft í sýndarveruleika gefur áhorfanda allt aðra upplifun og skilning”, sagði Alasdair MacLeod, yfirmaður Enterprise and Resources hjá stofnuninni.