Flugliðar lággjaldaflugfélagsins Ryanair sem eru með aðsetur á Ítalíu, Spáni og Belgíu, hafa boðað til verkfalla í lok júlímánaðar. Frá þessu er greint á vef BBC .

Ítölsku flugliðarnir ætla í verkfall í einn sólarhring þann 25. júlí næstkomandi, á meðan hinir flugliðarnir ætla í verkfall í tvo sólarhringa frá 25. júlí til 26. júlí.

Stéttarfélög flugliðanna hafa hótað frekari aðgerðum ef írska flugfélagið kemur ekki til móts við kröfur flugliðanna. Stéttarfélögin gáfu út lista í gær þar sem kröfur flugliðanna eru settar upp ásamt skilmálum krafnanna.

Meðal þess sem flugliðarnir krefjast er að þeir fái launin sín greidd inn á bankareikning í sínu heimalandi, frekar en í Írlandi eins og tíðkast í dag.

Þetta fyrirhugaða verkfall flugliða er ekki eina verkfallið sem Ryanair þarf að hafa áhyggjur af, en fyrr í vikunni tilkynntu flugmenn sem eru fastráðnir starfsmenn Ryanair, að þær ætli í verkfall 12. júlí næstkomandi.