Stefnt er að því að flytja alla meginstarfsemi ÍSAGA í Voga á Vatnsleysuströnd í framtíðinni en ný 2,5 milljarða króna verksmiðja fyrirtækisins þar var tekin formlega í notkun af iðnaðar- og viðskiptaráðherra við hátíðlega athöfn í gær.

Verksmiðjan framleiðir súrefni og köfnunarefni úr andrúmsloftinu og mun styðja við ört vaxandi íslenskan iðnað og framleiðslu, ásamt því að sjá heilbrigðisþjónustunni áfram fyrir hágæða súrefni á öruggan hátt. Með kaupum á AGA 1999 eignaðist þýska fyrirtækið Linde ÍSAGA en samsteypan er stærsta gasfyrirtæki heims í dag með starfsemi í yfir 100 löndum.

Bygging nýju súrefnis- og köfnunarefnisverksmiðju ÍSAGA ehf. og þýska móðurfélagsins við Heiðarholt í Vogum á Vatnsleysuströnd er fyrsta skrefið í að flytja þangað alla meginstarfsemi þessa gamalgróna fyrirtækis, sem stofnað var árið 1919 í samstarfi við sænska fyrirtækið AGA.

Það var Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sem tók nýju verksmiðjuna formlega í notkun við hátíðlega athöfn í Vogum, að viðstöddum bæjaryfirvöldum í Vogum, þingmönnum Suðurkjördæmis og fleiri góðum gestum.

Kemur í stað verksmiðju í Reykjavík

Nýja verksmiðjan leysir af hólmi 40 ára gamla verksmiðju við Breiðhöfða í Reykjavík. Afkastageta hennar er um 1.200 m³ á klukkustund, eða 30% meiri en gömlu verksmiðjunnar, en orkunotkunin er samt umtalsvert minni.

Fjárfestingarkostnaður vegna verksmiðjunnar er um 2,5 milljarðar króna, fyrst og fremst í tæknibúnaði. Hægt er að tvöfalda afkastagetuna þegar þurfa þykir og standa vonir til að það verði gert innan nokkurra ára samfara auknum uppgangi í fiskeldi, kísilmálmvinnslu, kæli- og frystiflutningum og endurvinnslu áls, ásamt áframhaldandi vexti í heilbrigðisþjónustu og hefðbundnum iðnaði.

Nær flestum viðskiptavinum

Verksmiðjan í Vogum er alsjálfvirk. Henni verður fjarstýrt af starfsfólki ÍSAGA sem fylgist með rekstrinum allan sólarhringinn á sama hátt og gert er í dag í verksmiðjunum við Breiðhöfða og að Hæðarenda í Grímsnesi, þar sem framleitt er koldíoxíð úr jarðhitavatni.

Enginn mengandi úrgangur eða aukaefni fylgja framleiðslunni og eini útblásturinn er lyktarlaus vatnsgufa. Staðsetningin í Vogum dregur einnig umtalsvert úr kolefnisspori ÍSAGA en u.þ.b. 90% af því fljótandi súrefni sem fyrirtækið framleiðir fer til viðskiptavina sem eru í innan við 100 km fjarlægð frá Vogum.

Flytja inn glaðloft

Það er mikið öryggismál fyrir íslenskt þjóðfélag að vera sjálfbært í framleiðslu súrefnis og köfnunarefnis, ekki síst með tilliti til öryggis sjúklinga segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

Auk þess að framleiða súrefni, köfnunarefni og koldíoxíð flytur ÍSAGA inn lofttegundir eins og glaðloft, argon, helíum, acetylen og própan. Um 28 manns starfa að jafnaði hjá fyrirtækinu sem er með höfuðstöðvar að Breiðhöfða, þar sem er m.a. áfyllingarstöð, skrifstofa og verslun, auk þess sem félagið er með sjö afgreiðslustaði víðsvegar um landið.