Í ágústmánuði síðastliðnum fóru 293.790 farþegar um Keflavíkurflugvöll og fjölgar þeim um 9% á milli ára. Þetta kemur fram í tölum frá flugvellinum.

Veruleg fjölgun farþega hefur átt sér stað á þessu ári og nemur tæpum 9% frá áramótum. Farþegar fyrstu átta mánuði þessa árs voru rúmlega 1,5 milljónir samanborið við 1,4 milljónir frá janúar til ágúst 2006.