Hagvöxtur mældist 3,1% á þriðja ársfjórðungi borið saman við sama fjórðung árið áður skv. bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Þessi vöxtur kemur í kjölfar 3,4% vaxtar á öðrum fjórðungi og 5,6% á fyrsta fjórðungi. Tölurnar virðast því benda til þess að verulega sé tekið að hægja á vexti hagkerfisins en hagvöxtur mældist 7,4% á síðasta ári. Hagvöxturinn á þriðja fjórðungi nú er sá minnsti í tvö ár að því er kemur fram í greiningu Hagfræðideildar Landsbankans.

Í spá Hagfræðideildar frá því í nóvember var gert ráð fyrir að hagvöxtur verði 5,5% á þessu ári. Hagvöxtur á fyrstu þremur fjórðungum ársins nemur 4,3% og er hann því minni en deildin spáði fyrir árið í heild.

Þá segir einnig að eftir verulega kröftugan vöxt einkaneyslu á öðrum fjórðungi eða 9,3% hafi dregið úr vexti einkaneyslu á þriðja ársfjórðungi en hann var 6,7%.

Þá hafi vöxtur fjármunamyndunar verið nokkuð krötugur en hann nam 19,4% sem er mesti vöxtur liðarins í heilt ár. Fjármyndamyndun skiptist í þrennt, atvinnuvegafjárfestingu, íbúðafjárfestingu og fjárfestingu hins opinbera. Fyrsti liðurinn er þar langstærstur og hefur mest vægi á heildarvöxtinn en sá vöxtur þess liðar, atvinnuvegafjárfestingar, nam 9,9%. Hins vegar hafi verið sögulega mikill vöxtur í íbúðafjárfestingu og fjárfestingu hins opinbera. Íbúðafjárfesting jókst um 48% á ársgrundvelli og tæp 40% aukning var í fjárfestingu hins opinbera.