Vestmannaeyjabær hefur ákveðið að höfða dómsmál á hendur Landsbankanum til greiðslu réttmæts endurgjalds fyrir stofnfjárhluti í Sparisjóði Vestmannaeyja. Þetta var ákveðið á fundi bæjarráðs í dag og kemur fram í tilkynningu frá sveitarfélaginu.

Forsaga málsins er sú að við yfirtöku Sparisjóðsins árið 2015 greiddi Landsbankinn stofnfjáreigendum samtals 332 milljónir króna fyrir allt stofnfé í sjóðnum. Vestmannaeyjabær og Vinnslustöðin, sem áttu um 10% og 5% hlut í Sparisjóðnum höfðu efasemdir um verðmatið og þrátt fyrir mótmæli Landsbankans féllust dómstólar á beiðni þessara tveggja stofnfjáreigenda um að dómkveðja tvo matsmenn til að meta verðmæti stofnfjár Sparisjóðsins. Dómkvaddir voru þeir Árni Tómasson, löggiltur endurskoðandi, og dr. Ásgeir Jónsson, hagfræðingur.

Niðurstaða hinna dómkvöddu matsmanna var sú að verðmæti stofnfjár Sparisjóðsins hafi verið 483 milljónir, eða 151 milljónum (45%) hærra en Landsbankinn greiddi stofnfjáreigendum við yfirtökuna.

Þegar matsgerðin lá fyrir var farið fram á að Landsbankinn greiddi stofnfjáreigendum mismuninn fyrir eign þeirra í Sparisjóðnum, en því hefur Landsbankinn nú hafnað.

Vestmannaeyjabær segist harma þessa afstöðu ríkisbankans Landsbankans, og hefur ákveðið að leita réttar síns fyrir dómstólum til að fá réttmætt endurgjald fyrir stofnfjárhluti sína.

Fari svo að dómstólar dæmi Vestmannaeyjabæ í vil, er það sagt munu hafa áhrif á aðra stofnfjáreigendur, svo sem einstaklinga, lífeyrissjóði og fyrirtæki.