Birna Þórarinsdóttir ráðinn framkvæmdastjóri Viðreisnar. Mun hún sinna daglegum rekstri flokksins og gegna lykilhlutverki í komandi kosningabaráttu.

Vann fyrir Evrópusambandið

Birna vann sem verkefnastjóri atvinnulífstengsla hjá Háskólanum í Reykjavík, en áður var hún meðal annars framkvæmdastjóri Evrópustofu, upplýsingamiðstöðvar ESB á Íslandi. Einnig hefur hún verið yfirmaður skrifstofu UNIFEM (nú UN Women) á vegum Sameinuðu þjóðanna í Serbíu og framkvæmdastýra landsnefndar UNIFEM á Íslandi.

Jafnframt hefur hún kennt alþjóða- og öryggismál við Háskóla Íslands og háskólann á Bifröst. Hún var einnig formaður stjórnar Samtaka um kvennaathvarf og situr sem sérfræðingur í samráðshópi á vegum utanríkisráðuneytisins um framkvæmd ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 1325 um konur, frið og öryggi.

Birna er með MBA frá Háskólanum í Reykjavík, M.A. í öryggismálafræði frá Georgetown University og B.A. gráðu í stjórnmálafræði frá HÍ. Hún tekur við störfum 1. ágúst næstkomandi.