Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til innanríkisráðuneytisins vegna breytinga á þinglýsingarlögum.

Með drögunum yrði lagður grundvöllur að rafrænum þinglýsingum skjala. Nái frumvarpið fram að ganga yrði mögulegt að þinglýsa öllum skjölum rafrænt.

Í umsögn Viðskiptaráðs er sagt brýnt að breyta þunglamalegu kerfi yfir í hraðvirka og notendavæna rafræna þjónustu sem er í samræmi við það sem gerist í nágrannaríkjum Íslands.

Mikilvægt sé að umrædd reglugerð verði uppfærð eins fljótt og unnt er þannig að þinglýsa megi sem flestum tegundum skjala með rafrænum hætti, segir í skýrslu ráðsins.

Ef vel tækist til verða flestar þinglýsingar rafrænar og því mögulegt fyrir eitt sýslumannsembætti að sjá um allar þinglýsingar.

Þessari breytingu fylgir gott tækifæri til rekstrarhagræðingar, að mati Viðskiptaráðs.Ráðið hefur fjallað áður um mikilvægi þess að auka framleiðni í opinberum rekstri til að nýta megi skattfé með sem bestum hætti.