Eftir sex ára aðhaldstímabil hafa orðið vatnaskil í fjármálum hins opinbera. Efnahagsleg uppsveifla mun samkvæmt spám skapa verulegt svigrúm í opinberum rekstri í fyrsta sinn frá falli fjármálakerfisins. Þetta kemur fram í nýrri skoðun Viðskiptaráðs Íslands.

Þar segir að eitt stærsta pólitíska viðfangsefni næstu ára sé að ákvarða hvernig ráðstafa skuli þessum fjármunum. Í skoðuninni kemur fram að svigrúm í opinberum rekstri verði komið í 100 milljarða króna árið 2018 samkvæmt áætlun. Segir Viðskiptaráð að skynsamlegast væri að verja þessu svigrúmi í niðurgreiðslu opinberra skulda og rétt útfærðar skattalækkanir.

Viðskiptaráð bendir á að vaxtagjöld ríkissjóðs séu 30% hærri á Íslandi en í Grikklandi sem hlutfall af landsframleiðslu. Aukning opinberra útgjalda gæti ýtt undir ofþenslu í efnahagslífinu á þessum tímapunkti.

„Þrír valkostir standa til boða. Hægt er að greiða niður opinberar skuldir, lækka skatta eða auka opinber útgjöld. Sú leið sem stjórnvöld velja mun ráða miklu um þróun rekstrarumhverfis fyrirtækja og lífskjara almennings á næstu árum. Þau fjárlög sem lögð verða fram í haust veita mikilvæga vísbendingu um framhaldið,“ segir Viðskiptaráð.

Hægt er að lesa skoðun Viðskiptaráðs hér .