Viðskipti hafa verið stöðvuð á aðallista og á NYSE MKT lista í kauphöllinni í New York. Enn hefur ekki borist yfirlýsing vegna stöðvunarinnar en talið er líklegt að um tæknigalla sé að ræða.

Uppfært : Í fyrri útgáfu þessarar fréttar var greint frá því að vefsíða Wall Street Journal lægi niðri en að óvíst væri hvort að það tengdist stöðvuninni. Hún hefur opnað aftur og er á henni að finna ítarlega frétt um stöðvunina í kauphöllinni í New York.