Starfsemi Gagnaveitu Reykjavíkur á árinu 2018 skilaði 192 milljóna króna hagnaði, sem er viðsnúningur frá 100 milljóna króna tapi félagsins sem er í eigu Orkuveitu Reykjavíkur frá fyrra ári.

Rekstrartekjur félagsins jukust um 24% frá fyrra ári, eða úr 2.140 milljónum í 2.655 milljónir  en á sama tíma drógust rekstrargjöld félagsins saman um 2%, eða úr 919 milljónum í 900 milljónir.

Framlegðin, EBITDA, jókst á sama tíma um 44%, úr 1.221 milljón í 1.755 milljónir og rekstrarhagnaðurinn, EBIT um 76%, úr 550 milljónum í 970 milljónir. Þar með nærri fimmfaldaðist hagnaðurinn fyrir tekjuskatt, úr 43 milljónum í 255 milljónir, sem er aukning um 493% til að vera nákvæmur.

Ljósleiðarinn njóti vaxandi vinsælda

Lykillinn að því sem félagið kallar góð afkoma er að á sama tíma og tekjur uxu með vaxandi vinsældum Ljósleiðarans dróst rekstrarkostnaður saman að því er segir í fréttatilkynningu.

Nú sér fyrir endann á því mikla fjárfestingarverkefni að hvert einasta heimili í þéttbýli á höfuðborgarsvæðinu verði tengt Ljósleiðaranum og eigi kost á Eitt gíg netsambandi. Um 70% heimila í landinu eiga nú kost á að nýta sér Ljósleiðarann.

Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri segir afkomuna vera í samræmi við áætlanir. „Tæplega 100 þúsund heimili á Íslandi hafa fengið kost á tengingu við hágæðasamband Ljósleiðarans síðustu ár,“ segir Erling Freyr.

„Með því að tengingu allra heimila í þéttbýli höfuðborgarsvæðisins er að ljúka og öll tengd heimili eiga kost á Eitt gíg sambandi dregur úr fjárfestingum. Viðskiptavinum sem velja Ljósleiðarann fjölgar stöðugt og tekjurnar vaxa þar með. Ísland er á meðal fremstu þjóða í hraða fjarskiptasambanda. Það er mikilvæg forsenda samkeppnishæfni landsins, atvinnulífs og íbúa.“

Um Ljósleiðarann

Ljósleiðarinn er opið grunnnet fjarskipta sem fjarskiptafyrirtæki á samkeppnismarkaði nýta til að bjóða þjónustu sína. Fyrirtækin sem bjóða þjónustu um Ljósleiðarann í dag eru Nova, Vodafone, Hringdu og Hringiðan.

Öllum sem tengd eru Ljósleiðaranum býðst tengihraðinn Eitt gíg, eða 1.000 megabit á sekúndu, hvort sem er við upphal eða niðurhal. Ljósleiðarinn er í eigu Gagnaveitu Reykjavíkur, sem er dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur.