Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu dróst lítillega saman á milli vikna í vikunni, en þar síðasta vika var sú veltumesta á þessu ári.

Þannig nam veltan í vikunni 2.028 milljónum króna samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands, samanborið við 2.309 milljónir króna veltu í vikunni á undan og dróst því saman um 12% á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta dróst örlítið saman á milli vikna og nemur nú 1.848 milljónum króna, samanborið við 1.1850 milljónir í vikunni á undan. Fjögurra vikna meðalvelta  hefur þó hækkað um 380 milljónir króna á fjórum vikum og ekki verið hærri frá því í fyrstu viku þessa árs. Rétt er þó að taka fram að velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu var töluverð vegna makaskiptasamninga í lok síðasta árs og ýtti þannig upp fjögurra vikna meðalveltu.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur hækkað um 34% á milli ára, en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 52% milli ára.

Tólf vikna meðalvelta jókst á milli vikna í þessari viku eða um 70 milljónir króna, og nemur nú 1.646 milljónum króna. Þá hefur 12 vikna meðalvelta ekki verið hærri frá því í byrjun febrúar sl.

Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði en hún er nú 1.558 milljónir króna á viku og hefur aukist um 27% á milli ára.

Í þessari viku:

Alls var 72 kaupsamningum þinglýst í vikunni, samanborið við 90 samninga í vikunni á undan – sem þá var mesti fjöldi samninga frá því í september 2008. Alls var 39 samningum þinglýst að meðaltali á síðasta ári en 50 samningum að meðaltali á viku það sem af er þessu ári þannig að fjöldi samninga síðustu vikur er töluvert yfir meðaltali.

Meðalupphæð á hvern samning hækkar lítillega á milli vikna og nam í vikunni 28,2 milljónum króna, samanborið við 25,7 milljónir króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 34,6 milljónir króna en það sem af nemur þessu ári nemur meðalupphæðin 28,6 milljónum króna og hefur því lækkað nokkuð.