Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu jókst umtalsvert á milli vikna í vikunni, en nýliðin vika var sú veltumesta á þessu ári.

Þannig nam veltan í vikunni 2.309 milljónum króna samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands, samanborið við 1.792 milljónir króna veltu í vikunni á undan og jókst því um 87% á milli vikna. Þá má geta þess að veltan í síðustu viku var einnig nokkuð yfir meðaltali.

Fjögurra vikna meðalvelta jókst einnig nokkuð á milli vikna og nemur nú 1.850 milljónum króna, samanborið við 1.599 milljónir í vikunni á undan. Fjögurra vikna meðalvelta  hefur nú hækkað um 342 milljónir króna á fjórum vikum og ekki verið hærri frá því í fyrstu viku þessa árs. Rétt er þó að taka fram að velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu var töluverð vegna makaskiptasamninga í lok síðasta árs og ýtti þannig upp fjögurra vikna meðalveltu.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur hækkað um 52% á milli ára, en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 49% milli ára.

Tólf vikna meðalvelta eykst einnig töluvert á milli vikna í þessari viku eða um 114 milljónir króna, og nemur nú 1.576 milljónum króna. Þá hefur 12 vikna meðalvelta ekki verið hærri frá því í byrjun febrúar sl.

Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði en hún er nú 1.548 milljónir króna á viku og hefur aukist um 22% á milli ára.

Í þessari viku:

Alls var 90 kaupsamningum þinglýst í vikunni, samanborið við 69 samninga í vikunni á undan. Alls var 39 samningum þinglýst að meðaltali á síðasta ári en 50 samningum að meðaltali á viku það sem af er þessu ári þannig að fjöldi samninga síðustu vikur er töluvert yfir meðaltali, þá sérstaklega í nýliðinni viku.

Meðalupphæð á hvern samning lækkar þó lítillega á milli vikna og nam í vikunni 25,7 milljónum króna, samanborið við 26 milljónir króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 34,6 milljónir króna en það sem af nemur þessu ári nemur meðalupphæðin 28,6 milljónum króna og hefur því lækkað nokkuð.