Stjórn Eimskipafélags Íslands hefur ráðið Vilhelm Má Þorsteinsson í starf forstjóra félagsins og mun hann hefja störf 24. janúar. Vilhelm Már tekur við af Gylfa Sigfússyni en um miðjan nóvember var tilkynnt að Gylfi myndi láta af störfum nú um áramótin. Starf forstjóra var auglýst í byrjun desember og naut Eimskip ráðgjafar Hagvangs við ráðninguna. Vilhelm Már hefur starfað hjá Íslandsbanka í tuttugu ár. Nú síðast sem framkvæmdastjóri fyrirtækja- og fjárfestasviðs bankans.

„Ég er þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt til að leiða Eimskip, sem er öflugt fyrirtæki í traustum rekstri," er haft eftir Vilhelm í fréttatilkynningu. „Þar bætist ég í góðan hóp starfsfólks og stjórnenda sem hafa mikla reynslu af flutningastarfsemi og ég hlakka til að starfa með. Ég hef átt frábær ár hjá Íslandsbanka þar sem starfsemin hefur tekið stöðugum breytingum í gegnum árin. Ég tek með mér mikilvæga reynslu úr þeim störfum þegar ég sný mér nú að nýjum verkefnum, sem fela meðal annars í sér að byggja upp starfsemi Eimskips á þeim trausta grunni sem lagður hefur verið.“

Baldvin Þorsteinsson, stjórnarformaður Eimskips, segir að með ráðningu Vilhelms fái Eimskipafélagið öflugan stjórnanda sem hafi sýnt að hann kunni að leiða saman fólk til að vinna samhent að settu marki og ná árangri.

„Eftir störf sín hjá Íslandsbanka býr hann yfir innsýn og þekkingu á rekstri fyrirtækja í síbreytilegu og krefjandi umhverfi ásamt því að búa yfir nauðsynlegri framsýni til að leiða Eimskip fram á veginn," er haft eftir Baldvin. „Rétt er að taka fram við þetta tilefni að afar okkar Vilhelms voru bræður og feður okkar stofnuðu saman útgerðarfélagið Samherja ásamt föðurbróður Vilhelms fyrir um 35 árum síðan. Sem  kunnugt er skildu leiðir feðra okkar í viðskiptum fyrir 20 árum. Frá þeim tíma hafa ekki verið fjárhagslegir- eða viðskiptalegir hagsmunir á milli okkar eða fjölskyldna okkar. Einhugur var í stjórn Eimskips um ráðningu Vilhelms. Stjórnin býður hann velkominn og væntir mikils af honum og hlakkar til samstarfsins.“