Miðstjórn Alþýðusambands Íslands skorar á stjórnvöld að stofna óhagnaðardrifinn samfélagsbanka, að því er kemur fram á heimasíðu sambandsins. Að mati sambandsins er almenningur langþreyttur á skorti á samkeppni á fjármálamarkaði, miklum kostnaði og háu vaxtastigi hér á landi.

„Með eignahlut sínum í ríkisbönkum eru stjórnvöld í kjörstöðu til að stofna óhagnaðardrifinn samfélagsbanka, þar sem hagsmunir neytenda verði hafðir að leiðarljósi og skilið sé á milli áhættusækins bankareksturs og almennrar inn- og útlánastarfsemi,“ segir enn fremur frétt sambandsins.

„Miðstjórn ASÍ telur að stofnun slíks samfélagsbanka geti verið mikilvæg leið til að auka heilbrigði fjármálamarkaðar og færa vaxtastig og kostnað nær því sem þekkist í nágrannalöndum.“