Stjórnendur kísilmálmvinnslu United Silicon (USi) í Helguvík gera ekki athugasemdir við þá ákvörðun Umhverfisstofnunar (UST) að heimila ekki gangsetningu verksmiðjunnar að nýju nema að höfðu samráði við stofnunina að því er segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

Þetta kemur jafnframt fram í svari USi við áformum stofnunarinnar frá 18. apríl sl. sem send var forstjóra UST í gær. Félagið lýsir eindregnum vilja til að starfa með UST að endurræsingu verksmiðjunnar og hvetur stofnunina til að hafa beina aðkomu að ræsingunni og þeim rannsóknum sem fylgja munu í kjölfarið.

Ætla að greiða fyrir kostnað Umhverfisstofnunar

Félagið mun greiða fyrir kostnað sem UST kann að verða fyrir vegna slíkrar þátttöku. Félagið lýsir einnig frekari aðgerðum sem gripið verður til í umhverfis- og vinnuverndarmálum og eindregnum vilja til góðs samstarfs við íbúa í Reykjanesbæ, bæjaryfirvöld og stéttarfélög.

Í bréfi USi kemur fram að helsta vandamál félagsins frá upphafi rekstursins megi rekja til lítils rekstrartíma ljósbogaofnsins sem stafar af tíðum bilunum í jaðarbúnaði ofnsins og hefur leitt til fjölmargra ofnstöðvana og keyrslu ofnsins á lágu álagi.

Segja lykt alvarlegustu afleiðingu bilana

Alvarlegasta afleiðing þessa hefur verið losun lyktar, sem valdið hefur íbúum Reykjanesbæjar óþægindum.

Stjórn félagsins hefur sett lausn þessa vandamáls í algeran forgang og hefur ráðið norska ráðgjafarfyrirtækið Multikonsult til að gera tillögur um þær endurbætur sem nauðsynlegar eru til að tryggja að verksmiðjan nái rekstrarstöðugleika og rekstrargæðum sem standist samanburð við það sem tíðkast í þeim fjölmörgu verksmiðjum sem starfa í Noregi.

Segja ekki um stórfellda ágalla að ræða

Fulltrúar Multikonsult hafa lokið frumrannsókn á verksmiðjunni. Niðurstaða þeirra er skýr um að ekki sé um stórfellda ágalla að ræða og að allar forsendur séu til að verksmiðjan geti náð fullum afköstum.

Þeir hafa þegar bent á atriði sem betur mega fara og er vinna við úrbótaáætlun í fullum gangi. Næsta skref er úttekt Multikonsult á verksmiðju félagsins með ofninn í rekstri.

Leita til norsku loftrannsóknarstofnunarinnar

Ákveðið hefur verið að leita til norsku loftrannsóknastofnunarinnar NILU (Norsk institutt for luftforskning) um að framkvæma mælingar á loftgæðum í nágrenni verksmiðjunnar þegar ljósbogaofninn verður ræstur að nýju.

Til að framkvæma áreiðanlegar mælingar á loftgæðum og ákvarða aðgerðir til að koma í veg fyrir eða takmarka að lykt berist frá verksmiðjunni mun þurfa að keyra ofninn á mismunandi álagi.

Lykt óhjákvæmileg

Óhjákvæmilegt er að við þær rannsóknir muni berast einhver lykt frá verksmiðjunni, en félagið mun í samráði við UST og með góðum fyrirvara tilkynna opinberlega um hvenær helst muni lyktar að vænta.

Félagið leggur áherslu á að mun erfiðara er að vinna að mengunarvörnum þegar rekstur ljósbogaofnsins liggur niðri og fer því fram á að UST stöðvi ekki rekstur ljósbogaofnsins að aflokinni endurræsingu nema fyrir liggi rökstudd og vísindaleg niðurstaða um að af rekstrinum stafi hætta.