Rithöfundurinn Michael Lewis, sem skrifaði meðal annars Moneyball og Big Short, vill fá Barack Obama með sér í lið til þess að skrifa handbók fyrir tilvonandi forseta framtíðarinnar. Þetta kemur fram á vef MarketWatch. Samkvæmt Lewis á bókin að fjalla um ákvörðunartöku forseta og þá ferla og þær venjur sem forsetar Bandaríkjanna hafa farið eftir.