Á heimasíðu Kópavogsbæjar er nú hægt að skoða á aðgengilegan hátt bókhald bæjarins, og er sveitarfélagið fyrsti opinberi aðilinn á Íslandi til að opna bókhald sitt með þessum hætti.

Lokaverkefni nema við HR

Verkefnið var unnið í samvinnu við HR, en lausnin er lokaverkefni nemenda sem höfðu áður verið í sumarvinnu hjá bænum.

Þar er hægt að finna upplýsingar um færslur fyrir árin 2014, 2015 og fyrstu sex mánuði þessa árs.

Hægt að skoða útgjöld og greiðslur bæjarins

„Með opnun bókhaldsins er stigið stórt skref í átt að opnari og gagnsærri stjórnsýslu og geta nú íbúar og aðrir áhugasamir fylgst með því hvernig fjármunum sveitarfélagsins er varið,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs í fréttatilkynningu.

Hægt er að skoða á vefnum hvaða greiðslur sveitarfélagið innti af hendi og til hverra. Er hægt að skoða útgjöld stjórnsýslunnar, einstakra stofnana og deilda. Þó ekki sé hægt að skoða einstaka reikninga er hægt að skoða á aðgengilegan hátt samanlagða upphæð reikninga út frá málaflokkum, deildum, stofnunum, fjármagnslyklum og fyrirtækjum sem bærinn skiptir við.

Eykur upplýsingaflæði til íbúa

„Opið bókhald er hluti af nútímalegri stjórnsýslu og það er ánægjulegt að við séum í fararbroddi í þeim efnum. Við höfum lagt áherslu á aukið samráð við íbúa og upplýsingaflæði til þeirra, opið bókhald er hluti af þeirri stefnu,“ segir Theodóra S. Þorsteinsdóttir formaður bæjarráðs Kópavogs, í fréttatilkynningu.

Þar kemur jafnframt fram að unnið sé að því að gera vefinn aðgengilegan í snjalltækjum, en enn sem komið er, er vefuinn einungis studdur að fullu í Chrome vafranum.