Skinney-Þinganes hefur þróað nýja aðferð við að vinna kjöt úr humarklóm. Að sögn Guðmundar H. Gunnarssonar, framleiðslustjóra hjá Skinney-Þinganesi, er kjötið ódýrara en hefðbundinn humar og mjög bragðmikið. Ásamt því hefur kjötið marga notkunarmöguleika.

Skinney-Þinganes hefur unnið að hinni nýju framleiðsluaðferð frá árinu 2012 í samstarfi við Matís. Guðmundur segir að samvinnan hafi nú skilað aðferð sem er talin frambærileg til framleiðslu. Nú er unnið að því að yfirfæra kunnáttuna úr rannsóknarstofu í framleiðslueiningu.

„Það er nú svona aðeins "hókus pókus" sem við erum ekki tilbúnir að tala um hvernig er gert nákvæmlega,“ segir Guðmundur spurður um það hvernig aðferðin virkar. „En þetta er í raun og veru kjöt sem er í tiltölulega litlum bitum, á formi sem þarf að móta aftur en hefur þá eiginleika að hafa mjög einkennandi humarbragð. Það þarf að meðhöndla þetta á eðlisfræðilegan hátt þannig að það gengur mikið bragð úr skelinni inn í kjötið.“

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kemur út á morgun. Meðal annars efnis í blaðinu er:

  • Miklar sviptingar eru á fylgi stjórnmálaflokka í Reykjavík.
  • Þrír ráðherrar boða átak til að ná niður byggingarkostnaði.
  • Borgarstjóri segir hugmyndir Samtaka iðnaðarins um verðmyndun fasteigna allt að því marxískar.
  • Samkeppniseftirlitið skoðar hvort mál gegn Byko verði borið undir dómstóla.
  • Uppsöfnuð fjárfestingarþörf í innviðum nemur hundruðum milljarða króna.
  • Skortur á sölu- og markaðsþekkingu hamlar nýsköpun hér á landi.
  • Miklar breytingar á fjármálamarkaði endurspeglast í breyttri markaðshlutdeild í verðbréfaviðskiptum.
  • Svipmynd af Kolbeini Friðrikssyni, fjármálastjóra hjá Höld.
  • Huginn og Muninn eru á sínum stað auk Týs sem fjallar um Seðlabankann og umboðsmann.
  • Óðinn fjallar um Jeremy Corbyn.