Stjórn Vinnslustöðvarinnar hf. hefur farið þess á leit við OMX Norrænu kauphöllina Íslandi að hluta¬bréf félagsins verði afskráð úr Nordic Exchange. Ályktun þess efnis var samþykkt á stjórnarfundi Vinnslustöðvarinnar hf. þann
13. september 2007.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að helstu ástæður þess að óskað er eftir afskráningu eru að stjórn Vinnslustöðvarinnar telur að félagið uppfylli ekki lengur skráningarskilyrði Nordic Exchange um fjölda hluthafa og dreifða eignaraðild, auk þess sem velta með hlutabréf félagsins er lítil og ekki útlit fyrir að hún muni aukast. Vegna beins og óbeins kostnaðar sem félagið ber vegna skráningar hluta þess á skipulagðan verðbréfamarkað þjónar skráningin því litlum tilgangi fyrir hluthafa félagsins.