Frá því að TM eignaðist óbeinan eignarhlut í drykkjarvöruframleiðandanum Refresco Group hefur virði hans hækkað um meira en 70% að því er Fréttablaðið greinir frá. Er um langstærstu einstöku fjárfestingareign TM að ræða,
Er 1,1% hluturinn, sem Tryggingamiðstöðin á í gegnum eignarhaldsfélögin S122 og Stoðir, að andvirði 2.156 milljónir króna í bókum félagsins. Í septemberlok var hann hins vegar metinn á 1.768 milljónir, en þá þegar hafði virði hlutarins aukist um ríflega hálfan milljarð.
Í apríl á síðasta ári keypti TM ásamt hópi fjárfesta 50,2% hlut í Stoðum af eignarhaldsfélagi Glitnis og fleiri erlendum fjármálastofnunum, en félagið á tæplega 9% í Refresco. Eru Stoðir, áður FL Group, talin hafa keypt upphaflega eignarhlutinn á um 40 til 50 milljarða króna.
Kom verðhækkunin í kjölfar 200 milljarða króna yfirtöku fjárfestingarsjóðanna PAI Partners og British Columbia Investment Management á drykkjarvörurframleiðandanum. Eins og fram kom í fréttum í janúar er vilji fyrir því hjá hluthöfum Stoða að halda áfram starfsemi félagsins eftir að eignarhluturinn í Refresco yrði seldur, og gæti þá félagið orðið stærsta fjárfestingarfélag landsins.
Frekari frétt um málefni Refresco:
- 24. janúar 2018 - Gætu orðið stærsta fjárfestingafélagið
- 26. október 2017 - Glitnir græðir á sölu Refresco
- 25. október 2017 - Fá 30 milljarða fyrir Refresco
- 3. október 2017 - Gera nýtt yfirtökutilboð í Refresco
- 31. ágúst 2017 - Hlutur TM í Stoðum á 1,8 milljarða
- 4. ágúst 2017 - Moody´s endurskoðar lánshæfi Refresco
- 26. júlí 2017 - Refresco kaupir Cotts fyrir 1,25 milljarða
- 26. apríl 2017 - Stoðir töpuðu 4,8 milljörðum
- 26. apríl 2017 - Kaupa meirihluta í Stoðum
- 9. desember 2015 - Kaupþing selur hluta eignarhluts í Refresco Gerber