Fjármálafyrirtækið Virðing vinnur nú að því að setja saman hóp fjárfessta til að kaupa 87% hlut kröfuhafa Kaupþings í Arion banka. Morgunblaðið greinir frá.

Eins og Viðskiptablaðið greindi frá í síðustu viku er Arctica Finance einnig að setja slíkan hóp saman.

Hóparnir leggja báðir áherslu á að fá lífeyrissjóði landsins með sér í lið, enda verður erfitt að safna nægu fé án aðkomu stærstu lífeyrissjóðanna.