Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, segir að uppi séu sterkar vísbendingar um að það sé að hægjast hratt á hagvextinum. Í greiningu SI, sem Viðskiptablaðið hefur fjallað um , komi fram vísbendingar frá vinnumarkaðshliðinni um fjölda starfandi, sem sé mjög góður mælikvarði sem hafi mikla fylgni við hagvöxtinn.

„Aðrar vísbendingar vísa í sömu átt. Meðal annars hafa væntingakannanir meðal fyrirtækjastjórnenda bent til þess að dregið hefur úr bjartsýni þeirra með tilliti til efnahagsþróunar hér á landi undanfarna mánuði. Nýleg könnun Deloitte sýnir svo að hlutfall fjármálastjóra sem telja að hagvöxtur muni aukast á næstu tveimur árum hefur ekki mælst minna í langan tíma, eða í kringum 14% í september síðastliðinn miðað við t.d. 66% árið 2016. Sterkar vísbendingar um hægari vöxt má svo einnig finna í öðrum efnahagsstærðum - svo sem veltutölum, innflutningstölum og væntingum heimilanna til efnahags- og atvinnuástandsins. Nú er mjög mikilvægt að í hagstjórninni sé brugðist rétt við stöðunni. Þar þurfa ríkið og sveitarfélög að ganga í takt. Virkja þarf stjórntæki hins opinbera til að milda niðursveifluna og búa í haginn fyrir hagvöxt til lengri tíma.

Einnig mun nú reyna á að umgjörð vinnumarkaðarins styðji við mjúka lendingu hagkerfisins. Hef ég þar talsverðar áhyggjur ef horft er til kröfugerðar verkalýðshreyfingarinnar. Við viljum að horft sé til stöðu atvinnugreina og hvaða hækkanir geta samrýmst framleiðnivexti og stöðugleika. Lítið hefur borið á þeirri viðleitni undanfarið. Nú þurfum við að huga að því hvernig við ætlum að undirbyggja aukna velmegun hér á landi litið til lengri tíma. Við hjá SI höfum nýlega lagt fram atvinnustefnu fyrir Ísland þar sem bent er á leiðir sem má fara til að efla samkeppnishæfni landsins og undirbyggja hagvöxt litið til lengri tíma. Um er að ræða tæplega 70 tillögur sem geta nýst okkur vel að fara í á næstu tveimur árum til þess að bæta lífsgæði landsmanna. Er þar verið að benda á leiðir á sviði menntunar, innviða, nýsköpunar og starfsumhverfis sem eru fjórir meginmálaflokkar sem mestu varðar um framleiðni og lífsgæði."