Úrvalsvísitala Kauphallar Nadsaq Iceland hækkaði um 0,18% í dag og stendur nú í 1.754,63 stigum. Heildarvelta á mörkuðum nam tæpum 6,7 milljörðum. Þar af var velta á hlutabréfamarkaði 1,4 milljarðar og 5,2 milljarðar á skuldabréfamarkaði.

Mest velta var með bréf Eimskipafélags Íslands en gengi félagsins hækkaði um 0,47% í 515,4 milljón króna viðskiptum. Mest lækkaði gengi bréfa VÍS eða um 1,6% í 15,6 milljón króna viðskiptum. Mest hækkaði gengi Nýherja eða um 1,97% í 20 milljón króna viðskiptum.

Vísitölur GAMMA

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 0,3% í dag í 6,4 milljarða viðskiptum. Hlutabréfavísitala GAMMA hækkaði lítillega í dag í 1,4 milljarða viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,4% í dag í 3,8 milljarða viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,6% í 0,7 milljarða viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,1% í 2,6 milljarða. viðskiptum.  Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,2% í dag í 1,2 milljarða viðskiptum.