Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan júní 2017 er 131,6 stig og er óbreytt frá fyrri mánuði að því er kemur fram í frétt Hagstofu Íslands um málið.

Verð á innfluttu efni lækkaði um 1% milli mánaða og hafði 0,2% til lækkunar vísitölunnar áhrif á vísitöluna meðan innlennt efni hækkaði um 0,5% og hafði 0,2% áhrif til hækkunar. Á síðastliðnum tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar lækkað um 0,3%. Vísitalan gildir í júlí 2017.