Vísitala íbúðarverðs á höfuðborgarsvæðinu var 491,8 stig í september 2016 og hækkaði því um 0,3% milli mánaða. Síðastliðna 3 mánuði hefur vísitalan hækkað um 3,5%, um 7,7% síðastliðna 6 mánuði og 12,2% síðastliðna tólf mánuði. Þetta kemur fram í frétt á vef Þjóðskrár Íslands.

Vísitalan segir til um breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. „Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði,“ segir í frétt á vef Þjóðskrár.