Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 564,2 stig í apríl 2017 og hækkaði um 2,2% frá fyrri mánuði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þjóðskrá íslands.

Vísitalan sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs á höfuðborgarsvæðinu.

Síðastliðna þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um 7,5%, en hækkunin nemur um 12,5% síðastliðna sex mánuði. Ef litið er til ársins eða síðustu tólf mánaða hefur vísitalan hækkað um 22,7%.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis.

Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.