Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 620,8 stig í desember 2018 og hækkar um 0,1% á milli mánaða. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands .

Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,6%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 2,4% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 5,9%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.