Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 442,5 stig í nóvember 2015 og hækkaði um 0,3% frá fyrri mánuði. Í janúar 1994 var vísitalan 100 stig.

Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2,12%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 3,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 9,6%. Þetta kemur fram í frétt Þjóðskrár .

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á meðaltali fermetraverðs. Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli.

Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.