Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 607,5 stig í ágúst 2018  (janúar 1994=100) og lækkar um 0,1% á milli mánaða. Þetta kemur fram í markaðsfréttum Þjóðskrár Íslands. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,1%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 2,1% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 4,1%. Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.