Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 193,6 stig í desember 2018 og lækkar um 0,7% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2,1% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 7,8%. Þetta kemur fram á síðu Þjóðskrár Íslands .

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.