Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í desember 2018 er 463,9 stig og hækkar um 0,74% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 397,2 stig og hækkar um 0,94% frá nóvember 2018. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar .

Matur og drykkjarvörur hækkuðu um 1% (áhrif á vísitöluna 0,11%). Verð á nýjum bílum hækkaði um 1,7% (0,15%). Flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 25,1% (0,27%). Verð á bensíni og olíum lækkaði um 3,2% (-0,11%).

Meðalvísitala neysluverðs árið 2018 454,8 stig, 2,7% hærri en meðalvísitala ársins 2017. Samsvarandi breyting var 1,8% árið 2017 og 1,7% 2016.

Meðalvísitala neysluverðs án húsnæðis árið 2018 var 389,9 stig, 0,85% hærri en meðalvísitala ársins 2017. Samsvarandi breyting var -2,2% árið 2017 og -0,1% 2016.

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,7% en vísitalan án húsnæðis hefur hækkað um 2,7%.

Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í desember 2018, sem er 463,9 stig, gildir til verðtryggingar í febrúar 2019. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 9.160 stig fyrir febrúar 2019.