Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 2,8% milli mánaða í september og október. Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Fasteignamats ríkisins hefur vísitala íbúðarverðs hækkað um 16,7% síðast liðna tólf mánuði. Vísitala byggingarkostnaðar fyrir desember hefur hækkað um 0,27% frá fyrra mánuði eftir því sem segir á vef Hagstofu Íslands og hækkað um 6,3% undanfarna tólf mánuði.