Viðskipti með hlutabréf OMX hafa verið stöðvuð að því er kemur fram í frétt til kauphallarinnar. Þar kemur fram að frekari upplýsinga sé að vænta á morgun.

Undanfarið hafa tveir aðilar verið að leitast við að taka yfir OMX og má gera ráð fyrir að stöðvun viðskipta nú tengist því.