Félag vélstjóra og málmtæknimanna samþykktu kjarasamning við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) með 61,3% greiddra atkvæða. Þetta kemur fram á vefsíðu félagsins .

„Á kjörskrá voru 479 félagsmenn og af þeim tóku 266, eða 55,5%, þátt í atkvæðagreiðslunni. Já sögðu 163 eða 61,3% þeirra sem greiddu atkvæði. Nei sögðu 98, eða 36,8%, og fimm, eða 1,9%, skiluðu auðu. Kjarasamningurinn er því samþykktur með 61,3% greiddra atkvæða,“ segir í fréttinni.