Fjarskiptafélagið Fjarskipti (Vodafone) hagnaðist um tæpelga 1,1 milljarð króna árið 2017 sem er 8% aukning milli ára. Hagnaður félagsins leiðréttur fyrir einskiptisliðum nam rúmlega 1,2 milljörðum og jókst um 21% milli ára. Þetta kemur fram í ársreikningi Fjarskipta fyrir árið 2017.

Stjórn Vodafone leggur til að ekki verði greiddur út arður til hluthafa vegna rekstrarársins 2017.

Heildartekjur Vodafone námu 14,3 milljörðum króna árið 2017 og jukust um 4% milli ára. EBITDA var 3,1 milljarður og jókst um 3%. Rekstrarhagnaður nam 1,6 milljörðum og dróst saman um 5% milli ára.

Eignir Vodafone námu 25,4 milljörðum í árslok 2017 en námu 14,9 milljörðum ári áður. Eiginfjárhlutfall var tæplega 40% í lok árs en var 47,6% í lok árs 2016.

Handbært fé frá rekstri nam 2,3 milljörðum króna en var rúmlega 3 milljarðar árið 2016. Fjárfestingar námu 7,9 milljörðum og voru fjármögnunarhreyfingar jákvæðar um 5,6 milljarða. Handbært fé lækkaði um 48 milljónir á árinu og var handbært fé 317 milljónir í árslok.

Stefán Sigurðsson, forstjóri Vodafone, segir árið 2017 einkennast af stórum áföngum.

„Það var mjög ánægjulegt að enda árið 2017 á að sameina tvær öflugar einingar í eina. Þó aðeins sé um einn mánuð af sameiginlegum rekstri að ræða má glöggt sjá sterk jákvæð áhrif sem munu halda áfram að skila sér af meiri krafti næstu fjórðunga og ár. Þrátt fyrir mikið álag og vinnu innan fyrirtækisins síðustu mánuði hefur allt gengið að óskum og eftir þeim áætlunum sem lagðar voru til grundvallar kaupunum.

Annar stór áfangi var á árinu þegar félagið flutti í nýjar höfuðstöðvar að Suðurlandsbraut 8. Verkefnið hefur gengið mjög vel og ljóst að nýtt skipulag hefur til dæmis ýmis tækifæri fyrir nýtt og sameinað fyrirtæki. Stefnt er að sameiningu alls fyrirtækisins að Suðurlandsbraut á árinu 2018. Þangað mun mikilvæg og leiðandi fjölmiðlastarfsemi á borð við Stöð 2, Bylgjuna og Vísi meðal annars flytjast  og starfsfólk fær frábæra vinnuaðstöðu. Um er að ræða nýtt upphaf nýs fyrirtækis í nýju skipulagi sem ég trúi að muni skila öllum haghöfum, viðskiptavinum, starfsmönnum og eigendum, miklum ávinningi.

Fyrir utan mikla vinnu sem tengdist kaupum og sameiningu þá hafði reglugerð Evrópusambandsins um afnám reikigjalda talsverð áhrif á farsímatekjur, ekki síst seinni hluta ársins. Hjá Vodafone var áhersla lögð á að breytingin skilaði gæða þjónustuupplifun til viðskiptavina sem tókst vel. Reksturinn í Færeyjum er einnig farinn að sýna skýran viðsnúning eins og stefnt hefur verið að og áætlanir gera ráð fyrir vaxandi rekstrarhagnaði árið 2018.

Fréttir síðustu daga endurspegla að fleiri tækifæri eru til þróunar í rekstri félagsins samanber tilkynningu um byggingu gagnavers á Korputorgi sem tilkynnt var nýverið um í samstarfi við RB, Opin kerfi og Korputorg. Við höfum mikla trú á tækifærum Íslands til að taka þátt í þessum ört vaxandi geira á heimsvísu og viljum stuðla að umhverfisvænum og öruggum íslenskum hágæðakosti fyrir innlenda og erlenda aðila. Við teljum að við getum í þessu sambandi bæði veitt núverandi viðskiptavinum okkar á fyrirtækjahliðinni aukna þjónustu auk þess að nýta alþjóðleg tengsl okkar til að sækja nýja viðskiptavini erlendis.“

Fjórði ársfjórðungur

Tekjur á fjórða ársfjórðungi 2017 námu 4,3 milljörðum króna, sem er hækkun um 25% milli ára. EBITDA nam 803 milljónum og hækkaði um 16% milli tímabila. Leiðrétt EBITDA var 961 milljón og hækkaði um þriðjung milli ára. Hagnaður á ársfjórðungnum nam 356 milljónum sem er 110% hækkun á milli tímabila.